Að ýmsu þarf að huga
Af hverju umhverfismerkt hús?
Það hefur verið draumur hjá okkur í mörg ár að byggja vistvænt hús á Íslandi. Þegar við fórum í nám til Gautaborgar árið 1995 þar sem Finnur ákvað að snúa við blaðinu og bæta umhverfisfræði við viðskiptafræðina. Á þeim tíma var umhverfisfræði ekki heitasta málefnið en þessi ákvörðun hefur hins vegar mótað okkar frá því.
Lóðin í Urriðaholti
Húsbyggjendur voru búin að ganga með hugmyndina að byggja vistvænt hús í mörg ár en hún var síðan endurvakin vorið 2015 þegar Halldóra Hreggviðsdóttir hjá Alta hefur milligöngu um að hefja samtal milli Urriðaholts og húsbyggjenda um verkefnið.
Vottunarkerfið
Skilyrði fyrir verkefninu að húsið skyldi vera vottað af óháðum þriðja aðila. Það eru fjölmörg kerfi sem koma til greina og við skoðuðum flest þeirra út frá markmiðum verkefnisins og þá helst að húsið þarf að vera byggt á markaðslausnum sem á að vera hægt að gera “mainstream” á Íslandi.
Þórdís og Finnur

Finnur er viðskiptafræðingur frá HÍ sem venti sínu kvæði í kross og skellti sér árið 1995 til Gautaborgar til að læra umhverfisfræði. Gautaborg varð fyrir valinu þar sem Þórdís fór í sérnám á Östra sjúkrahúsinu (nú Sahlgrenska) í hjartalækninum. Þau bjuggu í 12 ár í Partille (margir kannast við Partille Cup í handbolta) áður en þau fluttu aftur til Íslands árið 2007. Þórdís er hjartalæknir á Landsspítalanum, með stofu hjá Læknasetrinu í Mjódd auk ýmissa annara starfa. Hún er formaður GoRed á Íslandi og í stjórn HL stöðvarinnar Finnur hefur lengst af starfað sem ráðgjafi á sviði umhverfismála og samfélagsábyrgðar. Hann vann við byggingu álversins á Reyðarfirði þegar það var í byggingu, var sérfræðingur hjá Landsbankanum í samfélagsábyrgð en helgar tíma sínum í húsbyggingu og ráðgjöf þessa dagana. Finnur er stjórnarformaður Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og formaður skíðagöngufélagsins Ullur. Þórdís og Finnur eiga tvö börn. Svein sem er í rafmagnsverkfræði í Chalmers í Gautaborg og Arndísi Evu sem er í mastersnámi í sálfræði við HÍ.
Samstarfsaðilar

Urriðaholt
Urriðaholt ehf
Urriðaholt ehf er þróunaraðili Urriðaholts og er sá aðili sem tók ákvörðun um að fá Breeam Communities umhverfisvottun fyrir norðurhlutan þar sem Brekkugata 2 er staðsett
Batteríið
Batteríið arkitektar
Sigurður Einarsson hjá Batteríið arkitektar er hönnunarstjóri hússins. Þau bera þungan af því að finna lausnir sem uppfylla viðmið Svansins
VSB
VSB verkfræðistofa
VSB er ábyrgt fyrir verkfræðihönnun hússins og að finna og innleiða nýjar hugmyndir í bygginguna sem geta orðið markaðsráðandi í framtíðinni
Byko
Byko
BYKO er aðalbirgir byggingarvara og -efnis í húsið. Markmiðið er að þau viti allt um leyfileg byggingarefni í vistvæn hús þegar verkefninu er lokið
Mannverk
Mannverk
Mannverk er aðalverktaki og leyfishafi Svansins fyrir byggingu hússins. Þegar verkefninu er lokið ætla þau að kunna allt um að byggja Svansvottuð hús, fjölbýli og skóla
Landslag
Landslag
Landslag er hönnuður lóðaruppdrátta og lóðar. Þeirra áskorun er að gera lóðina sem náttúrulega og sem mest viðhaldsfría
BM Vallá
BM Vallá
BM Vallá sér okkur fyrir steypu. Þeirra áskorun er að minnka kolefnisfótspor steypunnar og að við notum sem umhverfisvænasta steypu þar sem hægt er
Gámaþjónustan
Gámaþjónustan
Gámaþjónustan á að tryggja rétta meðhöndlun aukaafurða á verkstað og að innleiða bestu meðferð þeirra fáu afurða sem við berum með okkur en þurfum ekki þegar heim er komið
Reykjafell
Reykjafell
Raflagnaefni
Reykjafell sér um allt raflagnaefni í húsið og á að tryggja að það sé að mestu halogenfrítt 