Vistferilgreining steinullar

Föstudaginn 3 nóvember síðastliðinn var Byko með kynningu á framtíðarsýn þeirra varðandi vistvænar byggingar.  Sigurður B Pálsson forstjóri Byko fór í gegnum þeirra áherslur, ég (Finnur) fékk að fara í gegnum ferillinn að byggja umhverfisvottað, Helga J Bjarnadóttir frá Eflu fór í gegnum vistspor íslenkrar steinullar og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir kynnti okkur síðan leyndardóma Vistbyggðaráðs.  Fyrirlestur Helgu Jóhönnu var um vistferillgreiningu íslenkrar steinullar.  Vistferilgreiningar eru flóknar og oft á tíðum nokkuð fræðilegar og geta skipts upp í marga undirþætti.  Helga lagði einungis áherslu á kolefnisspor íslenkrar steinullar og  tókst að fara í gegnum efnið á einfaldan og skiljanlegan máta.  Þess vegna bað ég hana um að taka saman helstu niðurstöður á mannamáli sem mætti birta hér á síðunni.

Ágrip af vistferilsgreiningu fyrir íslenska steinull.

Ég vil þakka Helgu Jóhönnu fyrir erindið og Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki fyrir samstarfið.